RUGL RUGL RUGL RUGL

HVERS EIGA NÁMSMENN ERLENDIS AÐ GJALDA!!!!

Og bara restin af Íslendingum!! ég veit lítið sem ekkert um þessi mál eða hver gerði hvað... Er þetta einhverjum að kenna?????? Geir Haarde?? Dabba kóng?? Eða bara okkur gráðugu íslendingum sem eyðum efnum framm??..

Eina sem ég veit er að þetta er komið út í algjört kjaftæði ég hef nú aldrei verið talin nískur maður en ég fór og keypti mér inn áðan..

Ein mjólk, shampó, brauð, súpu, lasagne og 4 banana... þetta kostaði mig 3600 krónur íslenskar miðað við gengið í dag!! ef þetta væri ekki síðasta önnin mín þá myndi ég flytja heim og hætta í náminu í bili!!!!!!!!!

 Þetta er bara ekki sanngjarnt.. en á meðan eru einhverjir konungar þarna úti sem eru búnir að einangra alla sína veggi heima við með seðlum og vita ekki hvað þeir eiga að gera við þá..

 kv. Jói Bjarni..


TIL HAMINGJU ÍSLAND!!

Já ég lagði það á mig hérna á grænlandi að vakna kl. 4 í nótt til að hlusta á leikinn í útvarpinu!!  og ég sá ekki eftir því þar sem okkar menn stóðu sig alveg hreint frábærlega í bæði vörn sem sókn!

Núna er ég búin að hlusta á flesta leikina í gegnum útvarpið hérna og er spenningurinn alltaf að fara alveg með mig og aðra hérna á vinnustaðnum!! Svo núna er bara að fara að skora á íslenkst sjónvarp að fara að senda þessa leiki út í gegnum netið svo allir Íslendingar um allan heim geti setið spenntir yfir næsta leik og vonandi leikjum!!

kv.
Jói Bjarna


mbl.is Ísland í undanúrslit á ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7 vikur og 1 dagur

Jæja þá er ég búin að afplána 7 vikur og 1 dag!! hérna á Grænlandi.. Ég á tvær vikur eftir og fer þá beint til dk að klára síðustu önnina!! :D

 En annars þá hef ég ekki farið af vinnustaðnum frá því ég kom.. ég er búin að vera hérna í þessum fyrði allan tímann.. Svo plönin eru hjá mér og Tryggva vinnufélaga að fara til Sisimiut og mála bæinn Grænan!! Þá verður það fyrsta skiptið sem ég fer af vinnustaðnum í allt sumar!! var ekki að átta mig á þessu fyrr en í gær. .. tíminn er fljótur að líða hérna!!

 Að sjálfsögðu tek ég með mér myndavelina og smelli myndum af lífinu á Grænlandi!!

Ég er ekki ennþá búin að synda yfir fjörðin en ætla að stefna á að gera það áður en ég fer.. við náðum því ekki vegna mikillar vinnu og tímaleisis síðustu helgi!

 later!

kv. JB 

 


PANIC!!!

Núna veit ég að ég er orðinn GAMALL!!!!! ég mundi ekki hvað ég var gamall í smá stund.. þurfti alveg að hugsa hvort það væri 26 eða 27!!!!! Er búin að vera að vinna svo mikið undanfarna daga og með margar tölur í hausnum.. það gæti skýrt þetta... En ég þurfti í alvöru ao stoppa og hugsa!!

 fæddur 82... jább gerir mig 26 ára!! :D

 þurfti bara að deila þessu!! :)

 kv. Jói Bjarni


Sjósund!!

Við skelltum okkur enn eina ferðina í sjóinn hérna og syntum 3 ferðir út að bauju og til baka.. til að setja þetta í samheingi fyrir þá sem eru að lesa þetta þá vorum við um 45 mín í sjónum og er hann ekki nema um 5 gráður! Ég var orðin það kaldur undir það síðasta að ég skalf allur!! En stefnan er sett á það núna á Laugardaginn að synda yfir fjörðinn.. það ætti að taka um 1 klst... og ef við treistum okkur til þá syndum við til baka!!  Og mútta þarf ekki að hafa áhyggjur því við verðum með bát sem siglir á eftir okkur ef eitthvað skyldi koma uppá! :)

En ég er komin með flickr síðu fyrir myndirnar mínar!! endilega kíkið á það!

http://www.flickr.com/photos/joibjarna/ 

 

2732451756_aed6b37a50

 

Kv. Jói Bjarni 


Myndir..

Setti inn nokkrar myndir héðan frá vinnustaðnum og öðru.. Ég á svo eftir að bæta aðeins í þetta eftir því sem líður á sumarið!! :)

myndirnar eru í myndaalbúmi hérna til hliðar!!

kv. JB. 


Sundsprettur!!

Ákvað að hætta kl. 19:00 í dag og skella mér smá sundsprett í sjónum hérna og horfa á eina bíómynd!! :D 

 

Maður verður nú að gefa sér einhvern afsöppunartíma!! :)
 
Kv. Jói Bjarni 

 


Fjallganga!!

Skellti mér í fjallgöngu í gær!! það var alveg frábært.. veðrið gott og gangan gekk vel.. Þegar upp var komið þá var fengið sér sæti og borðað kaffi.. En útsýnið þarna var alveg stórkostlegt.. maður sá aðeins inná innlandsísinn.. eða svona sá hvar hann byrjaði. . næst verður farið á topp sem maður sér alveg langt inná ísinn!! En vissuð þið að Innlands ísinn er með sitt eigið loftslag!! það finst mér vera mjög merkilegt!!...

En ég sá Hreindýr í ferðinni í gær.. ég náði mynd en það er svo langt í burtu að ég nenni ekki að setja hana hérna inn en hér koma tvær myndir úr ferðinni.. og mamma á örugglega eftir að fá sjokk þegar hún sér fyrri myndina!! hún er nebla pínu lofthrædd!! ;)

 

 
 Og svo ein skemmtileg hópmynd af okkur öllum sem fórum upp!! 
 

Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð!! Mig er alltaf að líka betur og betur við þetta land! þegar ég kom hingað fyrir 4 árum þá fanst mér þetta frábært en núna er þetta bara ennþá betra! ég mæli eindregið með því að allir sem hafi áhuga eigi að kíkja í tveggja vikna ferð hingað og fara í fjallgöngur og skoða landið.. semsagt taka algjöran túrista á þetta og vera með myndavelina um hálsin eins og japani á íslandi!!

ps. ef þið klikkið á myndirnar þá sjáið þið þær stórar!! :) 

en kveð í bili

kv. JB 


Kayak!!

Það er orðið nýjasta áhugamálið mitt!! ég skellti mér á kayak með Kidda vinnufélaga fyrir tveim dögum! og þetta er ekkert smá gaman! ég held nú barasta að ég drífi í því að skella mér í þennan kayak klúbb úti í horsens þegar ég kem aftur þangað!!

 

 

 
Ég verð nú að viðurkenna að mér tókst að velta nokkurusinnum í þessari ferð en eins og er sagt þá er engin verri þó hann vökni!! :) 

 kv. JB


Ljóskur skemmta sér víst ekkert betur!!

Two bowling teams, one of all blondes and one of all
brunettes, chartered a double-decker bus for a weekend
gambling trip.

The brunette team rode on the bottom of the bus, and the
blonde team rode on the top level.

The brunette team down below really whooped it up, having a
great time, when one of the brunettes realized she had not
heard anything from the blondes upstairs.

She decided to go up and investigate. When the brunette
reached the top, she found all the blondes in fear, staring
straight ahead at the road, clutching the seats in front of
them with white knuckles.

The brunette asked, “What the heck is going on up here? We
are having a great time downstairs!”

One of the blondes looked at her, swallowed hard, and
whispered, “YEAH, BUT YOU HAVE A DRIVER!”

 

kv from greenland!!

 JB.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband